Samkvæmt reglum Háskólans er einstökum deildum heimilt að meta námskeið eða námshluta sem stúdent hefur lokið við aðra deild eða annan skóla. Stúdentar sækja um slíkt mat til deildar sem ákveður hvort meta skuli viðkomandi námskeið, og þá til hve margra eininga. Deildin skal afla umsagnar kennara í viðkomandi grein áður en ákvörðun er tekin. Deildum Háskóla Íslands ber að fara eftir þeim alþjóðlegu samningum um viðurkenningu á háskólamenntun og hæfi sem íslenska ríkið er aðili að við afgreiðslu umsókna um mat á fyrra námi, s.s. Lissabon sáttmálanum og Reykjavíkuryfirlýsingu menntamálaráðherra Norðurlandanna.

Reglur um mat á námi geta verið mismunandi frá einni deild til annarar, þær geta kveðið á um lágmarksárangur í þeim námskeiðum sem metin eru, hámarksaldur prófa sem metin eru, auk þess sem reglur deildanna skulu kveða á um hvort heimilt er að meta námskeið sem áður hafa verið látin gilda til lokaprófs.

Þegar sótt er um mat á fyrra námi skal fylgja með umsókninni staðfest afrit af prófvottorði ásamt námslýsingum frá viðkomandi skóla. Í umsókn sinni skal stúdent gera grein fyrir hvort sótt er um að viðkomandi nám sé metið sem valnámskeið, eða hvort sótt er um að það komi í stað ákveðins tilgreinds skyldunámskeiðs.

 Sama síða á öðrum árum